3.4.7 Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
Lýsa hversu vel línulegt líkan fellur að gögnum með því að nota fylgnistuðul.
Para fylgnistuðul við dreifirit og línulegt líkan.
Þessi verkefni hjálpuðu þér að ná markmiðunum:
3.4.1 Að bera saman dreifirit með línulegri og ólínulegri leitni
Í þessu verkefni barstu saman fjögur dreifirit sem sýndu gögn með línulegri og ólínulegri leitni. Þú fékkst tækifæri til að nota hugtök nákvæmlega og ræða einkenni hluta í samanburði hver við annan.
3.4.2 Að greina mun á dreifiritum
Í þessu verkefni fékkstu spjöld með dreifiritum fyrir gögn sem línuleg líkön gátu fallið misvel að. Í vinnunni fórstu að greina mun á dreifiritum, línum sem falla best að gögnunum, r-gildum og tengslum þeirra við fylgnistuðulinn.
3.4.2 Sjálfspróf
3.4.2 Ítarefni
3.4.3 Að finna fylgnistuðul með tæknibúnaði
Í þessu verkefni notaðir þú tæknibúnað til að finna fylgnistuðul.
3.4.3 Sjálfspróf
3.4.3 Ítarefni
3.4.4 Að para saman fylgnistuðla
Í þessu verkefni dýpkaðir þú skilning þinn á fylgnistuðlum með því að skiptast á við félaga um að para saman dreifirit og fylgnistuðla. Þú fékkst tækifæri til að útskýra hugsun þína og rýna í röksemdafærslu annarra.
3.4.4 Sjálfspróf
3.4.4 Ítarefni
3.4.5 Að nota fylgnistuðul til að meta línu sem fellur að gögnum
Í þessu verkefni ákvarðaðir þú hvaða upplýsingar fylgnistuðull gefur um gögn í dreifiriti.
Eftir þessi verkefni leystir þú eftirfarandi æfingar:
3.4.6 Æfingar
Staðan tekin
Á kvarða frá 1 til 5, hversu vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum kennslustundarinnar?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að íhuga eigin hugsun.