Gagnrýnar hugsunarspurningar
Gagnrýnar hugsunarspurningar
Hvernig gæti einhver sem aðhyllist örvunarkenningu um áhugahvöt útskýrt heimsókn í skemmtigarð?
Skólar nota oft áþreifanlega umbun til að auka aðlögunarhæfa hegðun. Hvernig gæti það verið ókostur fyrir nemendur sem hafa innri tilhvötun til að læra? Hvaða afleiðingar hefur það fyrir skólastarf ef áþreifanleg umbun getur dregið úr innri tilhvötun til tiltekins verkefnis?
Stuðullinn sem oft er notaður til að flokka fólk eftir þyngd og líkamsfitu kallast líkamsþyngdarstuðull (BMI). Þar sem BMI er aðeins reiknaður út frá þyngd og hæð, hvernig getur hann verið villandi?
Eins og fram kemur í þessum hluta eru hvítar konur úr iðnvæddum, vestrænum menningarheimum gjarnan í mestri hættu á átröskunum á borð við lystarstol og lotugræðgi. Hvers vegna gæti það verið?
Þótt miklar rannsóknir hafi verið gerðar á því hvernig kynhneigð einstaklings mótast draga margir réttmæti rannsóknanna í efa og benda á að þátttakendur séu hugsanlega ekki dæmigerðir. Hvers vegna heldur þú að þetta geti verið réttmætt áhyggjuefni?
Engar áreiðanlegar vísindalegar sannanir sýna að bælingarmeðferð virki í raun. Hvers konar gögn þyrftir þú að sjá til að sannfærast af einhverjum sem héldi því fram að honum hefði tekist að breyta kynhneigð sinni?
Ímyndaðu þér að þú finnir eiturslöngu skríða upp fótlegginn rétt eftir að þú tókst lyf sem kom í veg fyrir virkjun drifkerfisins. Hverju myndi James-Lange-kenningin spá um upplifun þína?
Af hverju getum við ekki sett fram fullyrðingar um orsakasamband milli rúmmáls dreka og áfallastreituröskunar?