Gróskuhugarfar
Gróskuhugarfar
Leiðbeiningar um notkun orðalags gróskuhugarfars
Útbreitt er meðal kennara það sem kalla mætti „falskt gróskuhugarfar“. Dæmi um það eru kennarar sem segjast aðhyllast gróskuhugarfar og nota sumt af orðalagi þess („góð tilraun“, „þú gerðir þitt besta“) en halda þó áfram að tala um nemendur eins og hæfileikar þeirra séu fastmótaðir, til dæmis með því að segja að nemandi sé „ekki stærðfræðimanneskja“.
Carol Dweck, prófessor í sálfræði við Stanford-háskóla, leit á kenninguna um hugarfar sem mótvægi við sjálfsálitshreyfinguna. Í framkvæmd verður hún þó oft sama sjálfsálitshreyfingin í nýrri mynd: hverju barni er hrósað fyrir „sitt besta“ og gefið í skyn að besta frammistaða þess sé jafn góð og hjá öðrum.
„Nú til dags er hrósi of oft beint að nemendum sem leggja sig fram en læra ekki, til að láta þeim líða vel í augnablikinu: ‚Frábær viðleitni! Þú gerðir þitt besta!‘ Það er gott að nemendur reyndu, en það er ekki gott að þeir séu ekki að læra. Nálgun gróskuhugarfars hjálpar börnum að líða vel bæði til skamms og langs tíma með því að hjálpa þeim að vaxa við áskoranir og mótlæti á námsleiðinni. Þegar þau sitja föst geta kennarar metið vinnu þeirra fram að því en bætt við: ‚Tölum um hvað þú hefur prófað og hvað þú getur prófað næst.‘“ (Dweck, 2015)
Að hjálpa nemendum að tileinka sér gróskuhugarfar snýst um meira en að hrósa fyrir viðleitni. Við þurfum að setja gróskuhugarfar fram sem nýja leið til að skilja eigin markmið og túlka endurgjöf. Yeager og Dweck (2020) leggja til að betra sé að skilja gróskuhugarfar sem hluta af víðara merkingarkerfi.
„Merkingarkerfi fastmótaðs hugarfars“ styður:
- Frammistöðumarkmið - að leggja sig fram eingöngu til að sanna eigin hæfni
- Forðunarmarkmið tengd frammistöðu - að forðast aðstæður sem gætu sýnt fram á eigin vanhæfni
- Neikvæðar hugmyndir um viðleitni - að túlka þörfina fyrir áreynslu í verkefni sem merki um að maður hafi ekki náttúrulega hæfileika til þess
- Orsakaskýringar sem ýta undir bjargarleysi í erfiðum aðstæðum - að túlka slaka frammistöðu sem merki um stöðugan galla í sjálfinu
Aftur á móti styður merkingarkerfi gróskuhugarfars andstæða samstæðu hugmynda, þar á meðal:
- Námsmarkmið - að læra námsins vegna og af innri löngun til að bæta sig
- Jákvæðar hugmyndir um viðleitni - að líta á viðleitni sem eðlilegan þátt í því að bæta sig
- Þrautseigar orsakaskýringar - að túlka slaka frammistöðu sem endurgjöf sem hægt er að nýta til að bæta sig í síðari tilraunum
Þegar orðalag gróskuhugarfars er notað í inngripum sem eiga að efla nám er því mikilvægt að beina sjónum að undirliggjandi markmiði: að endurmóta orsakaskýringar nemenda, markmið þeirra og túlkun á viðleitni og mistökum.
Carol Dweck setti fram þessa gagnlegu mynd til að sýna hvernig við ættum að endurorða málfar okkar í þessu samhengi:


Hér að neðan eru tillögur að því hvernig má víkka þetta orðalag gróskuhugarfars enn frekar:
- Þú lærir meira af röngum svörum en réttum svörum. Röng svör hjálpa okkur að finna veilur í hugsun okkar. Taktu þér eina mínútu til að hugsa um hvers vegna svarið var rangt. Þá verður ólíklegra að þú svarir sams konar spurningu rangt aftur.
- Mistök eru endurgjöf. Þú getur notað þau til að verða betri.
- Því meira sem þú æfir þig núna, því auðveldara verður að leysa svona dæmi síðar.
- Við skulum reyna aftur á annan hátt.
- Þú virðist vera föst eða fastur. Hvern geturðu beðið um hjálp?
- Enginn ræður vel við svona dæmi í fyrstu tilraun. Haltu áfram, þá verður þetta auðveldara.
- Taktu þér augnablik til að hugsa um það sem þú lærðir rétt á undan þessu.
- Farðu aftur í síðasta hluta til að kanna skilning þinn, komdu síðan til baka og reyndu aftur við þessa spurningu.
Við ættum að ganga lengra en að hrósa bara fyrir viðleitni og beina nemendum að árangursríkum námsaðferðum, metavitund, námsmarkmiðum og orsakaskýringum sem styrkja trú þeirra á eigin getu.
Og mundu:

Heimildir:
Dweck, C. (2015). Carol Dweck revisits the growth mindset. Education Week, 35(5), 20-24.
Dweck, C. (2016). What having a “growth mindset” actually means. Harvard Business Review, 13, 213-226.
Yeager, D. S., & Dweck, C. S. (2020). What can be learned from growth mindset controversies? American Psychologist, 75(9), 1269-1284. https://doi.org/10.1037/amp0000794