Yfirlit 8. hluta
Yfirlit 8. hluta
Yfirlit 8. hluta
Af hverju skiptir þetta máli?
Ímyndaðu þér að þú sért í almenningsgarði. Þar er stór gosbrunnur. Í gosbrunninum skjótast vatnsstrókar upp og sveigjast frá miðjunni að jaðri laugarinnar. Vatnsstrókarnir lenda alltaf inni í lauginni. Hvernig virkar þetta?
Í sama garði sérðu líka hóp barna kasta bolta sín á milli. Hvað eiga gosbrunnurinn og börnin sem leika sér með boltann sameiginlegt?
Svarið er: annars stigs jöfnur!
Horfðu á myndbandið til að læra svolítið um hvernig annars stigs jöfnur birtast í hversdagslegum hlutum, allt frá gosbrunnum til boltaleikja.
Í þessum hluta lærir þú um annars stigs jöfnur. Skilningur á annars stigs jöfnum getur hjálpað þér að skilja heiminn í kringum þig. Til dæmis má nota þær til að ákvarða hámarkshæð sem kastaður bolti nær og tímann sem það tekur boltann að lenda á jörðinni.
Persónuþroski: Forvitni
Í myndbandinu lærðir þú að Juan David Crespo notaði annars stigs jöfnur til að skipuleggja hversu hátt og langt hver vatnsstrókur fer í gosbrunni. En hvernig fer hann nákvæmlega að því? Hefur þú áhuga á að læra meira?
Í þessum hluta vinnur þú að því að efla forvitni þína. Forvitni er löngun til að læra og skilja nýja hluti. Þegar eitthvað vekur forvitni þína vinnur þú úr því á dýpri hátt en með einföldum grunnskilningi einum saman. Fólk ver yfirleitt meiri tíma í að læra um hluti sem það er forvitið um og man upplýsingarnar betur. Forvitið fólk hefur tilhneigingu til að vera hamingjusamara.
Hugsaðu um forvitni þína eins og hún er núna. Hversu margar af eftirfarandi fullyrðingum eiga við um þig?
- Ég sökkti mér svo djúpt í námið að ég missti tímaskynið.
- Ég tók frumkvæði að því að læra meira um eitt af áhugamálum mínum.
- Þegar ég vissi ekki svarið við spurningu gat ég ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég fann svarið.
- Ég kannaði alveg nýja hugmynd eða efni, bara mér til gamans.
Ekki hafa áhyggjur ef engin af þessum fullyrðingum á við um þig. Það tekur tíma að efla þennan eiginleika. Fyrsta skrefið hefst í dag!
Ertu tilbúin/tilbúinn að læra þetta?
Undirbúningur fyrir 8. hluta
Til að vera tilbúin/tilbúinn fyrir þennan hluta þarftu að geta:
- Skrifað jafngildar stæður með því að nota dreifiregluna.
- Fundið skurðpunkta við x-ás á grafi annars stigs jöfnu sem er gefin á þáttuðu formi.
- Parað saman gröf annars stigs falla og föllin þeirra.
Næst svarar þú nokkrum spurningum sem hjálpa þér að sjá hversu vel þú ert undirbúin/undirbúinn fyrir þennan hluta. Ef þú þarft hjálp geta nokkrar smákennslur hjálpað þér að rifja upp það sem þú þarft að æfa betur.