Yfirlit verkefnis 5
Yfirlit verkefnis 5
Í þessu verkefni notarðu helstu fallgerðirnar sem þú hefur lært til þessa, línuleg föll og vísisföll, til að setja fram líkön af mannfjölda á ólíkum stöðum.
Í fyrsta verkefninu færðu gögn um íbúafjölda þriggja borga. Þú átt að setja fram línulegt líkan eða vísislíkan fyrir hverja borg, ef það á við, og nota líkanið til að spá fyrir um íbúafjölda á öðrum árum.
Í öðru verkefninu skoðarðu mannfjölda heimsins. Verkefnið er opnara; gögnin eru takmörkuð og líklega þarftu að afla frekari gagna.
Í öllu verkefninu vinnurðu með ólíka hluta ferlis líkanagerðar. Farðu vandlega yfir valið á líkani: þú þarft að íhuga vel hvenær línulegt líkan eða vísislíkan á best við.
Verkþættir verkefnisins
Verkþættir verkefnisins
- Greining gagna
- Að rita jöfnur fyrir mannfjöldalíkön
- Opin líkanagerð með gagnarannsókn
Námsmarkmið
Námsmarkmið
Þegar þú hefur lokið verkefninu hefurðu sýnt að þú getir:
- metið hversu vel valið líkan fellur að gefnum upplýsingum.
- ákveðið hvort línulegt fall eða vísisfall eigi betur við til að líkana raunveruleg gögn.