Í þessari kennslustund lærðir þú að leysa jöfnu fyrir eina af breytunum.
Verkefnin hér fyrir neðan hjálpuðu þér að ná þessu markmiði.
1.9.1: Að umrita jöfnu með þremur breytum
Í þessu verkefni umritaðir þú jöfnu til að finna fjölda flata, horna eða brúna í mismunandi platónskum margflötungum.
1.9.2: Að skrifa jöfnu til að tákna skorðu
Í þessu verkefni skrifaðir þú jöfnu sem táknar skorður á sendingum bíla og vörubíla. Síðan umritaðir þú jöfnuna til að finna hve margir bílar og vörubílar gætu verið í sendingunni.
1.9.2: Sjálfspróf
1.9.2: Ítarefni
1.9.3: Að skrifa og umrita jöfnur með tveimur breytum
Í þessu verkefni skrifaðir þú jöfnu um fjárhagsáætlun borgar fyrir endurnýjun slitlags á vegum og laun starfsmanna. Þú umritaðir jöfnurnar til að finna hve marga starfsmenn væri hægt að ráða og á hve mörgum kílómetrum af vegum væri hægt að endurnýja slitlag. Þegar þú leysir jöfnu fyrir ólíkar breytur getur það hjálpað þér að svara ólíkum spurningum.
1.9.3: Sjálfspróf
1.9.3: Ítarefni
1.9.4: Að leysa fyrir tiltekna breytu
Í þessu verkefni leystir þú jöfnu fyrir tiltekna breytu. Það hjálpaði þér að finna hve margir barnamiðar eða fullorðinsmiðar seldust á skemmtideginum.
Eftir þessi verkefni leystir þú þessar æfingar:
1.9.5: Æfingar
Staðan tekin
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel treystir þú þér til að ná námsmarkmiðum þessarar kennslustundar?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að ígrunda eigin hugsun.