1.9.1 Að umrita jöfnu með þremur breytum
1.9.1 • Að umrita jöfnu með þremur breytum
Upphitun
Í fyrri kennslustund sáuð þið jöfnuna sem tengir saman fjölda horna, flata og brúna í platónskum margflötungi.
Í spurningum 1-2 skrifið þið jöfnu sem auðveldar að finna fjölda horna í þeim platónsku margflötungum sem lýst er.
Áttflötungur með 8 fleti

Lausn
Tuttuguflötungur með 30 brúnir
Lausn
3. Buckyball
Buckminsterfulleren, einnig kallað Buckyball, er margflötungur með 60 horn. Hann er ekki platónskur margflötungur, en fjöldi flata, brúna og horna tengist á sama hátt og í platónskum margflötungum.
Skrifið jöfnu sem auðveldar að finna fjölda flata í Buckyball ef við vitum hve margar brúnir hann hefur.
Lausn
Hvers vegna skiptir þetta máli?

Bróðir Alex getur notað algebru til að gera fjárhagsáætlun fyrir launin sín úr vinnu á pizzustað. Hann notar hluta peninganna í mat, hluta í að fara út með vinum sínum og leggur hluta fyrir háskólanám.
Ef hann notar breytur til að tákna mismunandi leiðir til að nota peningana getur hann sett breyturnar inn í jöfnu og gengið úr skugga um að peningarnir dugi fram að næstu útborgun.