1.1.3 Skilningur á skorðum
1.1.3 • Skilningur á skorðum
Verkefni
Skorða er eitthvað sem takmarkar hvað er mögulegt eða skynsamlegt í tilteknum aðstæðum.
Til dæmis gæti ein skorða í pítsuveislu verið fjöldi pítsusneiða sem hver einstaklingur má fá, . Við getum ritað s < 4 til að segja að hver einstaklingur fái færri en 4 sneiðar.
Skoðaðu stæðurnar sem þú ritaðir þegar þú skipulagðir pítsuveisluna fyrr. Veldu stæðu sem notar einn eða fleiri bókstafi.
Hvaða stæðu ertu að skoða?
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
Hvað táknar fyrsti bókstafurinn?
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
= fjöldi áleggstegunda
Hvaða gildi væru skynsamleg fyrir þennan fyrsta bókstaf? (Til dæmis, gæti gildið verið stærra en 50? Er mögulegt fyrir bókstafinn að vera ekki heiltala? Neikvæð tala?)
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
Kostnaður við álegg er venjulega minni en $2,00 fyrir hverja áleggstegund.
Hvað táknar annar bókstafurinn?
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
= fjöldi pantaðra pítsa
Hvaða gildi væru skynsamleg fyrir þennan annan bókstaf? (Til dæmis, gæti gildið verið stærra en 50? Er mögulegt fyrir bókstafinn að vera ekki heiltala? Neikvæð tala?)
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
Fjöldi pantaðra pítsa verður líklega ekki meiri en fjöldi nemenda í bekknum.
Ritaðu jöfnur eða ójöfnur sem tákna nokkrar skorður í pítsuveisluáætluninni þinni. Ef stærð verður að hafa nákvæmt gildi skaltu nota táknið =. Ef hún þarf að vera stærri eða minni en ákveðið gildi til að vera skynsamleg skaltu nota táknið > eða <.
Lausn
Svör geta verið mismunandi, en hér er dæmi.
ef táknar heimsendingargjaldið
Myndband: Að rita ójöfnu fyrir skorðuna
Horfðu á eftirfarandi myndband til að læra meira um skorður.
Ítarefni
Ójöfnur
Ein leið til að tákna skorðu er að nota ójöfnutákn. Til dæmis gætir þú ákveðið að í mesta lagi 3 áleggstegundir eigi að vera á hverri pítsu. Þetta mætti tákna með < 3, ef t táknar fjölda áleggstegunda.
Á talnalínunni stækka tölurnar eftir því sem farið er frá vinstri til hægri. Hægt er að nota talnalínuna til að útskýra táknin < og >.
< er lesið „ er minna en “. Þá er a vinstra megin við b á talnalínunni.
> er lesið „ er stærra en “. Þá er a hægra megin við b á talnalínunni.
Ójöfnurnar a < b og a > b má lesa frá vinstri til hægri eða frá hægri til vinstri, þó lesum við á íslensku venjulega frá vinstri til hægri.
- Til dæmis jafngildir 7 < 11 því að 11 > 7 .
- Til dæmis jafngildir 17 > 4 því að 4 < 17 .
| Ójöfnutákn | Orð |
|---|---|
| a ≠ b | a er ekki jafnt og b |
| a < b | a er minna en b |
| a ≤ b | a er minna en eða jafnt og b |
| a > b | a er stærra en b |
| a ≥ b | a er stærra en eða jafnt og b |
Skoðum nokkur ákveðin dæmi. Orðaðu eftirfarandi fullyrðingar á íslensku.
Lausn
Berðu saman við dæmisvar:
17 er minna en eða jafnt og 26.
Lausn
Berðu saman við dæmisvar:
12 er stærra en 27 deilt með 3.
Lausn
Berðu saman við dæmisvar:
y plús 7 er minna en 19.