Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Perlusnekkjan er heillandi dýr. Hún nærist á kuðungakröbbum, fiskum og öðrum krabbadýrum. Hún hefur harða ytri skel með mörgum samtengdum hólfum sem raðast í kuðungsferil. Hún getur dregið sig inn í skelina til að forðast afræningja. Þegar hluti skeljarinnar er skorinn burt kemur fullkominn kuðungsferill í ljós. Hólfin inni í skelinni minna að nokkru leyti á árhringi í tré.
Fallið sem lýsir kuðungsferli má setja fram í rétthyrndum hnitum (eða kartesískum hnitum). Ef við skiptum yfir í hnitakerfi sem hentar hringlaga mynstrum betur verður mun einfaldara að lýsa fallinu. Skauthnitakerfið hentar vel til að lýsa ferlum af þessu tagi. Hvernig getum við notað þetta hnitakerfi til að lýsa kuðungsferlum og öðrum geislalaga myndum? (Sjá dæmi 1.14.)
Í þessum kafla skoðum við einnig stikajöfnur. Með þeim er auðvelt að lýsa ferlum eða skoða staðsetningu agnar eða hlutar í tveimur víddum sem fall af tíma. Síðar í bókinni notum við stikajöfnur og skauthnit til að lýsa mörgum viðfangsefnum.