1.3.2 Umrita hnit punkta milli rétthyrndra hnita og skauthnita.
1.3.3 Teikna skauthnitaferla út frá gefnum jöfnum.
1.3.4 Umrita jöfnur milli rétthyrndra hnita og skauthnita.
1.3.5 Greina samhverfu skauthnitaferla og skauthnitajafna.
Í rétthyrnda hnitakerfinu (eða kartesísku sléttunni) má varpa punktum á raðtvenndir og raðtvenndum á punkta. Þetta kallast gagntæk vörpun milli punkta sléttunnar og raðtvennda. Skauthnitakerfið er önnur leið til að tengja punkta við raðtvenndir. Í þessum undirkafla sjáum við að skauthnit geta stundum verið gagnlegri en rétthyrnd hnit.
Skilgreining skauthnita
Til að finna hnit punkts í skauthnitakerfinu skoðum við mynd 1.27. Punkturinn hefur kartesísku hnitin Línustrikið frá upphafspunktinum að punktinum sýnir fjarlægðina frá upphafspunktinum til og hefur lengdina Hornið milli jákvæða -ássins og línustriksins hefur stærðina Þetta bendir til eðlilegrar samsvörunar milli hnitaparsins og gildanna og Þessi samsvörun er undirstaða skauthnitakerfisins. Athugið að hverjum punkti í kartesísku sléttunni tengjast tvö gildi (þess vegna er talað um raðtvennd). Í skauthnitakerfinu tengjast hverjum punkti líka tvö gildi: og
Mynd 1.27. Ótiltekinn punktur í kartesísku sléttunni.
Samkvæmt hornafræði rétthyrndra þríhyrninga gilda eftirfarandi jöfnur fyrir punktinn
Einnig gildir
Því má tákna hvern punkt í kartesíska hnitakerfinu sem raðtvennd í skauthnitakerfinu. Fyrra hnitið kallast geislahnit og hið síðara hornhnit. Hvern punkt í sléttunni má tákna á þessu formi.
Þegar x ≠ 0 hefur jafnan óendanlega margar lausnir fyrir raðtvenndina Ef við veljum hornhnitið þannig að ≤ θ < og tökum mið af því hvar punkturinn ≠ (0, 0) liggur fæst einkvæm framsetning með jákvæðu r. Þá gildir Á jákvæða y-ásnum er θ = π/2 og á þeim neikvæða θ = 3π/2. Í skautinu er r = 0 og hornhnitið má velja frjálst.
Dæmi 1.10
Að umrita milli rétthyrndra hnita og skauthnita
Umritið hnit eftirfarandi punkta í skauthnit.
Umritið hnit eftirfarandi punkta í rétthyrnd hnit.
Lausn
Notið og í jöfnu 1.8:
Því má tákna þennan punkt með í skauthnitum.
Punkturinn liggur í fjórðungi . Dragið viðmiðunarhornið frá til að finna stærð hornsins í radíönum.
Því má tákna þennan punkt með í skauthnitum.
Notið og í jöfnu 1.8:
Ef seinni jafnan er notuð beint þarf að deila með núlli. Þegar punkturinn er teiknaður í rétthyrnda hnitakerfinu sést að hann liggur á jákvæða y-ásnum. Hornið milli jákvæða x-ássins og jákvæða y-ássins er Því má tákna þennan punkt með í skauthnitum.
Notið og í jöfnu 1.8:
Því má tákna þennan punkt með í skauthnitum.
Notið og í jöfnu 1.7:
Því má tákna þennan punkt með í rétthyrndum hnitum.
Notið og í jöfnu 1.7:
Því má tákna þennan punkt með í rétthyrndum hnitum.
Notið og í jöfnu 1.7:
Því má tákna þennan punkt með í rétthyrndum hnitum.
Sama punkt má tákna með fleiri en einu skauthnitapari. Til dæmis tákna skauthnitin og bæði punktinn í rétthyrnda hnitakerfinu. Gildi má einnig vera neikvætt. Skauthnitin tákna því líka punktinn í rétthyrnda hnitakerfinu, eins og sjá má með jöfnu 1.7:
Hvern punkt í sléttunni má tákna á óendanlega marga vegu með skauthnitum. Í rétthyrnda hnitakerfinu hefur hann hins vegar aðeins eina framsetningu.
Framsetning punkts í skauthnitum hefur einnig rúmfræðilega túlkun. Geislahnitið hefur formerki og fjarlægð punktsins frá skautinu er |r|. Hornhnitið ákvarðar endageisla sem fæst með snúningi frá jákvæða -ásnum. Ef r ≥ 0 liggur punkturinn á þeim geisla, en ef r < 0 liggur hann á gagnstæða geislanum. Jákvæð horn eru mæld rangsælis og neikvæð horn réttsælis. Skauthnitakerfið er sýnt á myndinni hér á eftir.
Mynd 1.28. Skauthnitakerfið.
Línustrikið frá miðju grafsins til hægri (sem kallast jákvæði x-ásinn í kartesíska kerfinu) er skauthnitaásinn. Miðpunkturinn er skaut hnitakerfisins, eða upphafspunktur þess, og samsvarar Innsti hringurinn á mynd 1.28 inniheldur alla punkta í einnar einingar fjarlægð frá skautinu og er táknaður með jöfnunni Síðan táknar mengi punkta sem eru 2 einingar frá skautinu og svo koll af kolli. Línustrikin frá skautinu samsvara föstum hornum. Til að teikna punkt í skauthnitakerfinu byrjum við á horninu. Ef hornið er jákvætt mælum við það rangsælis frá skauthnitaásnum. Ef það er neikvætt mælum við það réttsælis. Endageisli hornsins er geislinn sem fæst þegar jákvæða x-ásnum er snúið um hornið θ. Ef er jákvætt förum við r einingar frá skautinu eftir endageislanum. Ef r er neikvætt förum við |r| einingar frá skautinu eftir gagnstæða geislanum.
Dæmi 1.11
Punktar teiknaðir í skauthnitakerfi
Teiknið hvern af eftirfarandi punktum í skauthnitakerfið.
Lausn
Punktarnir þrír eru teiknaðir á eftirfarandi mynd.
Mynd 1.29.Þrír punktar teiknaðir í skauthnitakerfi.
Skauthnitaferlar
Nú kunnum við að teikna punkta í skauthnitakerfið og getum því skoðað hvernig teikna má ferla. Í rétthyrnda hnitakerfinu getum við teiknað graf fallsins og þannig myndað feril í kartesísku sléttunni. Á sama hátt getum við teiknað feril með fallinu
Hugmyndin að baki því að teikna graf falls í skauthnitum er sú sama og í rétthyrndum hnitum. Byrjið á lista yfir gildi óháðu breytunnar í þessu tilviki) og reiknið samsvarandi gildi háðu breytunnar Þannig fæst listi raðtvennda sem má teikna í skauthnitakerfið. Tengið síðan punktana og nýtið þau mynstur sem kunna að koma fram. Fallið getur til dæmis verið lotubundið. Þá þarf aðeins takmarkaðan fjölda gilda óháðu breytunnar.
Dæmi 1.12
Graf falls teiknað í skauthnitum
Teiknið ferilinn sem er skilgreindur með fallinu Greinið hvers konar ferill þetta er og umritið jöfnuna í rétthyrnd hnit.
Lausn
Fallið er margfeldi af sínusfalli og er því lotubundið með lotuna svo notið gildi milli 0 og Niðurstöður skrefa 1–3 eru sýndar í töflunni hér á eftir. Mynd 1.30 sýnir grafið sem byggist á töflunni.
θ
r = 4 sin θ
θ
r = 4 sin θ
0
0
π
0
π/6
2
(7 π)/6
−2
π/4
2 sqrt(2) ≈ 2,8
(5 π)/4
−2 sqrt(2) ≈ −2,8
π/3
2 sqrt(3) ≈ 3,5
(4 π)/3
−2 sqrt(3) ≈ −3,5
π/2
4
(3 π)/2
-4
(2 π)/3
2 sqrt(3) ≈ 3,5
(5 π)/3
−2 sqrt(3) ≈ −3,5
(3 π)/4
2 sqrt(2) ≈ 2,8
(7 π)/4
−2 sqrt(2) ≈ −2,8
(5 π)/6
2
(11 π)/6
−2
2 π
0
Mynd 1.30.Graf fallsins er hringur.
Þetta er graf hrings. Umrita má jöfnuna í rétthyrnd hnit með því að margfalda fyrst báðar hliðar með Þá fæst jafnan Notum næst að og Þá fæst Til að setja jöfnuna á staðalform drögum við frá báðum hliðum hennar og fyllum í ferningslið:
Þetta er jafna hrings með radíus 2 og miðju í rétthyrnda hnitakerfinu.
Grafið í dæmi 1.12 var hringur. Umrita má jöfnu hringsins í rétthyrnd hnit með umritunarformúlunum í jöfnu 1.8. Dæmi 1.13 sýnir fleiri dæmi um hvernig skauthnitajöfnur eru umritaðar í rétthyrnd hnit.
Dæmi 1.13
Skauthnitajöfnur umritaðar í rétthyrnd hnit
Umritið hverja eftirfarandi jöfnu í rétthyrnd hnit og greinið graf hennar.
Lausn
Takið tangens af báðum hliðum. Þá fæst Þar sem má setja í stað vinstri hliðar jöfnunnar stærðina Þá fæst sem má umrita sem Þetta er jafna beinnar línu sem liggur gegnum upphafspunktinn og hefur hallatöluna Almennt táknar skauthnitajafna af gerðinni beina línu gegnum skautið. Ef K = π/2 + nπ, þar sem n er heiltala, er línan x = 0 og hefur enga hallatölu. Þegar cos K ≠ 0 er hallatalan
Hefjum fyrst báðar hliðar jöfnunnar í annað veldi. Þá fæst Í stað setjum við Þá fæst jafnan sem er jafna hrings með miðju í upphafspunktinum og radíus 3. Almennt táknar skauthnitajafna af gerðinni , þar sem k er jákvæður fasti, hring með radíus k og miðju í upphafspunktinum. (Athugið: Þegar báðar hliðar jöfnu eru hafnar í annað veldi geta nýir punktar bæst óvart við. Þetta þarf alltaf að hafa í huga. Í þessu tilviki bætast þó engir nýir punktar við. Til dæmis táknar sama punkt og
Margföldum báðar hliðar jöfnunnar með Þá fæst Notum næst formúlurnar
Þá fæst
Til að setja jöfnuna á staðalform færum við fyrst breyturnar frá hægri hlið jöfnunnar yfir á vinstri hlið og fyllum síðan í ferningslið.
Þetta er jafna hrings með miðju í og radíus 5. Athugið að hringurinn liggur gegnum upphafspunktinn þar sem miðjan er í 5 eininga fjarlægð frá honum.
Við höfum nú séð nokkur dæmi um hvernig teikna má gröf ferla sem skauthnitajöfnur skilgreina. Töflurnar hér á eftir sýna nokkra algenga ferla. Í hverri jöfnu eru a og b fastar. Gildin geta þó gefið einfaldari ferla en heitin í töflunum gefa til kynna. Fyrir hringjöfnuna r = a cosθ + b sinθ fæst aðeins skautið ef a = b = 0. Fyrir r = a + bθ fæst vefja þegar b ≠ 0; ef b = 0 fæst hringur með radíus |a|, eða aðeins skautið ef a = 0. Fyrir snigilferilsjöfnurnar gefur a = 0 hring með radíus |b| og b = 0 hring með radíus |a|/2; ef báðir fastarnir eru núll fæst aðeins skautið.
Hjartaferill er sértilvik snigilferils (limaçon, borið fram „lí-ma-son“) þar sem eða Hér þarf einnig a ≠ 0; ef a = b = 0 fæst aðeins skautið. Rós er mjög áhugaverður ferill. Athugið að grafið fyrir hefur fjögur krónublöð. Grafið fyrir hefur hins vegar þrjú krónublöð, eins og sýnt er.
Mynd 1.33. Graf
Fyrir r = a cos(nθ) eða r = a sin(nθ), þar sem a ≠ 0 og n er jákvæð heiltala, gildir eftirfarandi regla. Sé stuðullinn við slétt tala eru krónublöðin 2n. Sé stuðullinn við oddatala eru þau n. Fyrir neikvæða heiltölu n er |n| notað í reglunni. Gildið n = 0 er undanskilið: þá fæst hringur með radíus |a| í kósínustilvikinu en aðeins skautið í sínustilvikinu. Ef a = 0 fæst aðeins skautið í báðum tilvikum. Kannið sjálf hvers vegna þetta gerist. Enn áhugaverðari gröf myndast þegar stuðull er ekki heiltala. Ef stuðullinn er ræð tala endurtekur ferillinn sig í heild eftir tiltekna aukningu hornsins og myndar því lokaðan feril (mynd 1.34(a)). Ef stuðullinn er óræð tala endurtekur ferillinn sig aldrei í heild (mynd 1.34(b)), þótt einstök krónublöð byrji og endi í skautinu. Þótt ferillinn virðist lokaður sést við nánari athugun að krónublöðin rétt ofan við jákvæða r-ásinn eru örlítið þykkari. Ástæðan er sú að ferillinn rekur ekki aftur nákvæmlega sömu braut.
Mynd 1.34. Gröf skauthnitarósa fyrir föll með (a) ræðum stuðli og (b) óræðum stuðli. Rósin í (b) fyllir ekki skífuna með radíus 3 og miðju í upphafspunktinum, þótt svo virðist. Til að sjá það nægir að athuga að fyrir hvern fastan geisla frá upphafspunktinum eru aðeins teljanlega mörg gildi hornsins þeta sem gefa punkt á grafinu á þeim geisla. Fyrir hvern punkt í skífunni má hins vegar finna punkta á grafinu eins nálægt honum og óskað er.
Dæmi 1.14
Upphaf kaflans: að lýsa vefju
Rifjið upp hólfaskiptu perlusnekkjuna sem kynnt var í upphafi kaflans. Þegar helmingur ytri skeljar hennar er skorinn burt sést vefjulögun. Hægt er að lýsa vefju með rétthyrndum hnitum. Mynd 1.35 sýnir vefju í rétthyrndum hnitum. Hvernig getum við lýst þessum ferli stærðfræðilega?
Mynd 1.35.Hvernig getum við lýst grafi vefju stærðfræðilega?
Lausn
Þegar punkturinn P færist rangsælis eftir vefjunni eykst fjarlægð hans d frá upphafspunktinum. Gerum ráð fyrir að fjarlægðin d sé k sinnum hornið , þar sem k er fasti. Hornið er mælt samfellt meðan línustrikið OP snýst frá jákvæða x-ásnum. Hornið heldur áfram að vaxa um 2π við hvern heilan snúning í stað þess að byrja aftur á núlli. Hér gerum við ráð fyrir k > 0 og θ ≥ 0. Því er þar sem er upphafspunkturinn. Með þessu horni fæst stikun í rétthyrndum hnitum:
Stikajöfnurnar gefa x og y. Hornið θ heldur utan um bæði fjórðung og fjölda snúninga. Gildið arctan(y/x) er aðeins á bilinu ]−π/2, π/2[ og getur því ekki gefið hornið fyrir alla vefjuna. Auk þess er y/x óskilgreint þegar x = 0. Í skauthnitum er jafnan einfaldari. Hér, þar sem r ≥ 0, er og er síðara hnitið. Jafna vefjunnar verður því Athugið að þegar er einnig svo vefjan hefst í upphafspunktinum. Með því að bæta fasta við breytum við geislahnitinu við θ = 0. Þá verður jafnan með föstum og Þegar θ = 0 er r = a. Fyrir a ≥ 0, k > 0 og θ ≥ 0 hefst ferillinn í fjarlægðinni a frá skautinu og fjarlægist það. Fyrir almenn gildi er fjarlægðin d = |r|. Ef θ er ótakmarkað og k ≠ 0 liggur ferillinn enn gegnum skautið við θ = −a/k. Þegar k = 0 fæst hringur með radíus |a|, eða aðeins skautið ef a = 0. Þegar k ≠ 0 kallast ferillinn vefja Arkimedesar, eftir gríska stærðfræðingnum Arkimedesi.
Önnur gerð vefju er logravefja, sem lýst er með fallinu Hér veljum við a > 0, b > 0 og b ≠ 1. Ef b > 1 vex geislahnitið þegar θ vex, en ef 0 < b < 1 minnkar það. Þegar b = 1 fæst hringur og þegar a = 0 fæst aðeins skautið. Jákvæður grunnur b tryggir að formúlan sé skilgreind fyrir öll raungildi θ. Graf fallsins er sýnt á mynd 1.36. Þessi vefja lýsir lögun skeljar hólfaskiptrar perlusnekkju.
Mynd 1.36.Logravefja líkist lögun skeljar hólfaskiptrar perlusnekkju. (Mynd: breytt verk eftir Jitze Couperus, Flickr)
Gerum ráð fyrir að ferli sé lýst í skauthnitakerfinu með fallinu Þar sem umritunarformúlurnar úr skauthnitum í rétthyrnd hnit eru
má umrita þær með fallinu
Þannig fæst stikun ferilsins í rétthyrndum hnitum þar sem er stiki. Vefjuformúlan á mynd 1.31 verður til dæmis
Þegar tekur gildi frá til myndast öll vefjan.
Samhverfa í skauthnitum
Þegar samhverfa falla í rétthyrndum hnitum er rannsökuð (þ.e. á forminu er rætt um samhverfu um y-ásinn og samhverfu um upphafspunktinn. Ef fyrir öll í skilgreiningarmengi er jafnstætt fall og graf þess samhverft um y-ásinn. Ef fyrir öll í skilgreiningarmengi er oddstætt fall og graf þess samhverft um upphafspunktinn. Með því að finna hvers konar samhverfu graf hefur lærum við meira um lögun þess og útlit. Samhverfa getur einnig leitt í ljós aðra eiginleika fallsins sem myndar grafið. Samhverfa skauthnitaferla virkar á svipaðan hátt.
Eftirfarandi tafla sýnir dæmi um hverja gerð samhverfu.
Dæmi 1.15
Að nota samhverfu til að teikna graf skauthnitajöfnu
Finnið samhverfu rósarinnar sem jafnan skilgreinir og teiknið graf hennar.
Lausn
Gerum ráð fyrir að punkturinn sé á grafi
Til að kanna samhverfu um skauthnitaásinn reynum við fyrst að skipta út fyrir Þá fæst Þar sem þetta breytir upphaflegu jöfnunni stenst hún ekki þetta próf. Förum aftur að upphaflegu jöfnunni og skiptum út fyrir og út fyrir . Þá fæst
Þegar báðar hliðar þessarar jöfnu eru margfaldaðar með fæst sem er upphaflega jafnan. Þetta sýnir að grafið er samhverft um skauthnitaásinn.
Til að kanna samhverfu um skautið skiptum við fyrst út fyrir sem gefur Þegar báðar hliðar eru margfaldaðar með −1 fæst sem er ekki í samræmi við upphaflegu jöfnuna. Jafnan stenst því ekki prófið fyrir þessa samhverfu. Förum aftur að upphaflegu jöfnunni og skiptum út fyrir . Þá fæst
Þar sem niðurstaðan er í samræmi við upphaflegu jöfnuna er grafið samhverft um skautið.
Til að kanna samhverfu um lóðréttu línuna skiptum við fyrst bæði út fyrir og út fyrir
Þegar báðar hliðar þessarar jöfnu eru margfaldaðar með fæst sem er upphaflega jafnan. Grafið er því samhverft um lóðréttu línuna
Þetta graf er samhverft um skauthnitaásinn, upphafspunktinn og lóðréttu línuna gegnum skautið. Til að teikna graf fallsins setjum við upp töflu með gildum milli 0 og og speglum síðan grafið sem fæst.
θ
r
0
0
π/6
(3 sqrt(3))/2 ≈ 2,6
π/4
3
π/3
(3 sqrt(3))/2 ≈ 2,6
π/2
0
Þannig fæst eitt krónublað rósarinnar, eins og eftirfarandi graf sýnir.
Mynd 1.37.Graf jöfnunnar milli og
Þegar þessi mynd er spegluð í hina þrjá fjórðungana fæst allt grafið, eins og sýnt er.
Mynd 1.38.Allt graf jöfnunnar kallast fjögurra krónublaða rós.
Æfingar í undirkafla 1.3
Í eftirfarandi dæmum skuluð þið teikna punktinn sem hefur gefin skauthnit. Myndið fyrst hornið og merkið síðan stefnubundnu fjarlægðina r eftir geislanum.
125.
126.
127.
128.
129.
130.
131.
Skoðið skauthnitagrafið hér fyrir neðan í eftirfarandi dæmum. Gefið tvö skauthnitapör fyrir hvern punkt.
132.
Hnit punkts A.
133.
Hnit punkts B.
134.
Hnit punkts C.
135.
Hnit punkts D.
Í eftirfarandi dæmum eru gefin rétthyrnd hnit punkts. Finnið tvö skauthnitapör fyrir punktinn þannig að hornhnitið sé á bilinu Námundið að þremur aukastöfum.
136.
137.
138.
139.
140.
141.
Finnið rétthyrnd hnit punktsins sem gefinn er í skauthnitum í eftirfarandi dæmum.
142.
143.
144.
145.
146.
147.
148.
Ákvarðið í eftirfarandi dæmum hvort graf skauthnitajöfnunnar sé samhverft um -ásinn, -ásinn eða upphafspunktinn.
149.
150.
151.
152.
153.
Lýsið grafi hverrar skauthnitajöfnu í eftirfarandi dæmum. Staðfestið lýsinguna með því að umrita jöfnuna í rétthyrnd hnit.
154.
155.
156.
157.
Umritið rétthyrndu jöfnuna á skauthnitaform og teiknið grófa mynd af grafi hennar í eftirfarandi dæmum.
158.
159.
160.
Umritið rétthyrndu jöfnuna á skauthnitaform og teiknið grófa mynd af grafi hennar í eftirfarandi dæmum.
161.
162.
Umritið skauthnitajöfnuna á rétthyrnt form og teiknið grófa mynd af grafi hennar í eftirfarandi dæmum.
163.
164.
165.
166.
Teiknið grófa mynd af grafi skauthnitajöfnunnar og greinið samhverfu þess í eftirfarandi dæmum.
167.
168.
169.
170.
171.
172.
173.
174.
175.
176.
177.
178.
[T] Jafna ferilsins er Ferillinn kallast strophoid-ferill. Notið grafteikniforrit til að teikna grófa mynd af grafinu og ákvarðið aðfelluna út frá því.
179.
[T] Notið grafteikniforrit til að teikna grófa mynd af grafi
180.
[T] Notið grafteikniforrit til að teikna
181.
[T] Notið tölvu eða reiknivél til að teikna graf
182.
[T] Notið tölvu eða reiknivél til að teikna (notið bilið
183.
Teiknið grófa mynd af eftirfarandi skauthnitaferli án þess að nota tölvu eða reiknivél:
184.
[T] Notið grafteikniforrit til að teikna fyrir
185.
[T] Notið tölvu eða reiknivél til að teikna fyrir
186.
[T] Til er ferill sem kallast „svartholið“. Notið tölvu eða reiknivél til að teikna fyrir
187.
[T] Notið niðurstöður dæmanna tveggja hér á undan til að kanna gröf og fyrir