Hvað er fall?
Opnaðu gagnvirka herminn til að hefja verkefnið.
Í þessu verkefni skaltu stoppa og deila svörum þínum með félaga þegar þú sérð 💬. Ef þið eruð með ólík svör skulið þið reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Í fyrsta verkefninu gætirðu hafa tekið eftir því að allar skjámyndir hermisins hafa þrískipta uppbyggingu. Hægt er að lýsa þessum þremur hlutum á ýmsa vegu, eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan.

Finndu eigin heiti eða merkingar fyrir þessa þrjá hluta falls.
Deildu merkingunum með hópnum. Skrifaðu niður það sem er líkt með þeim. 💬
Fyrir spurningar 3-4 skaltu nota eftirfarandi leiðbeiningar.
Notaðu skjámyndina „Mynstur“ í herminum. Athugaðu að þú getur skipt á milli skjámynda með tækjastikunni fyrir neðan Function Builder.
Blái „smiðurinn“ í miðjum skjánum er fall. Lýstu því hvað fall er með heitunum sem bekkurinn hefur komið sér saman um. 💬
Gerðu ráð fyrir að þú byggir þetta fall:

a. Fylltu út töfluna hér fyrir neðan með því að teikna hvað gerist eftir að hluturinn fer í gegnum fallið.
| Inntak | Úttak |
|---|---|
b. Skrifaðu reglu sem lýsir því hvað fallið gerir. Berðu hana saman við hópinn þinn. 💬