Pörun grafa og jafna
Pörun grafa og jafna
umferð: Helstu einkenni
Lausn
Dreifið grafaspjöldunum þannig að þau snúi upp. Skiptist á að velja graf með félaga ykkar. Svarið síðan spurningum 1-2.
1. Fyrir hvert graf sem þú velur skaltu segja félaga þínum hver hallatalan er, hvar grafið sker x-ás og hvar það sker y-ás.
2. Fyrir hvert graf sem félagi þinn velur skaltu meta hvort þú sért sammála röksemdunum. Ef þú ert sammála skaltu skrifa svörin á grafið fyrir félagann. Ef þú ert ósammála skuluð þið ræða hugsun ykkar og vinna saman að niðurstöðu.
umferð: Pörun við jöfnur
Lausn
Dreifið jöfnuspjöldunum þannig að þau snúi upp og látið grafaspjöldin líka snúa upp. Skiptist á að para hvert graf við jöfnu með félaga ykkar. Svarið síðan spurningum 3-4.
3. Fyrir hverja pörun sem þú finnur skaltu útskýra fyrir félaga þínum hvernig þú veist að grafið og jafnan passa saman.
4. Fyrir hverja pörun sem félagi þinn finnur skaltu hlusta vandlega á útskýringuna. Ef þú ert ósammála skuluð þið ræða hugsun ykkar og vinna saman að niðurstöðu.
umferð: Dæmi úr raunveruleikanum
Lausn
Skrifaðu dæmi úr raunveruleikanum sem hægt væri að lýsa með einni af jöfnunum eða einu af gröfunum.
5. Veldu punkt sem er á grafinu eða uppfyllir jöfnuna og útskýrðu fyrir félaga þínum hvað punkturinn þýðir í samhengi við dæmið þitt.
6. Útskýrðu fyrir félaga þínum hvað hallatalan og skurðpunktarnir við ásana tákna í samhengi við dæmið þitt.