Tölur og reikningur · 2. bekkur
Samlagning með yfirfærslu
Leggðu saman tveggja stafa tölur og færðu tug yfir þegar einingarnar verða tíu eða fleiri.
Hér æfir þú
- Ég get skrifað tölurnar hvora undir aðra, einingar undir einingum og tugi undir tugum.
- Ég get sýnt hvernig tíu einingar verða einn tugur sem er færður yfir í tugasætið.
- Ég get lagt saman tvær tveggja stafa tölur og munað eftir tugnum sem var færður yfir.